Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
RÚV
Spegillinn
News & Politics
Icelandic
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Website
Episodes
Episodes
300
31 July 2026
10 min
30 July 2026
Baráttan um boltann - FIFA og EUFA takast á
Þetta er Spegillinn. Umsjónarmaður er Ævar Örn Jósepsson. Öll aðildarsambönd Evrópska knattspyrnusambandsins ætla að sniðganga HM í fótbolta ef áform forseta sambandsins um að selja 20 prósenta hlut í mótinu ná fram að ganga. Þetta var samþykkt á neyðarfundi evrópska sambandsins í dag. Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir ónefndum heimildarmönnum að andrúmsloftið á fundinum hafi verið...
10 min
29 July 2026
Minkar á Íslandi - lausir og villtir
Hundruðum og jafnvel þúsundum minka var sleppt úr búrum sínum á síðasta minkabúi landsins, Dalsbúi í Mosfellsdal, á miðvikudag og einhver hundruð hið minnsta sluppu út úr húsi. Svo virðist sem fæstir þeirra hafi komist út fyrir öryggisgirðingu sem umlykur búið, en fregnir hafa þó borist af dýrum utan hennar.Eldisminkar eru um margt frábrugðnir villtu minkunum, sem þó eru allir afkomendur fyrri...
9 min
28 July 2026
Stéttarfélög og ESB
Síðast þegar íslensk stjórnvöld sóttust eftir inngöngu í Evrópusambandið var drjúgur meirihluti innan Alþýðusambands Íslands hlynntur þeirri vegferð. Sú afstaða kom meðal annars fram í ræðum, ályktunum og samþykktum á þingum ASÍ, og það ítrekað. En hvernig er þetta í dag? Hólmfríður María Ragnhildardóttir kannar málið og ræðir við Finnbjörn Hermannsson, forseta ASÍ.Umsjón: Ævar Örn...
10 min
27 July 2026
Sprenging í net- og símaglæpum
Óhætt er að segja að sannkölluð sprenging hafi orðið á sviði net- og símglæpa af öllu tagi, á allra síðustu árum. Skipulögð, fjölþjóðleg glæpasamtök hafa komið sér upp stærðarinnar úthringi- og tölvuverum, sem gera ekki annað en að reyna að svíkja fé af fólki alstaðar í heiminum allan daginn alla daga allan ársins hring með hinum fjölbreytilegustu aðferðum. Og sækist það giska vel. Raktar eru...
9 min
24 July 2026
9 min
23 July 2026
Kjarnorkusamningar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu
Orkumálaráðherrar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu skrifuðu í gærkvöld undir tvo samninga um kjarnorkumál, um samvinnu ríkjanna um nýtingu Sáda á kjarnorku til orkuframleiðslu og eftirliti með henniSamningurinn er til þrjátíu ára og er ætlað að uppfylla „orkuþörf“ olíuveldisins Sádi-Arabíu, samkvæmt tilkynningu bandaríska orkumálaráðherrans, Chris Wright, en í langtíma efnahagsáætlun Sáda er gert ráð...
10 min
22 July 2026
Sýrland í dag
Nýjum forseta Sýrlands hefur tekist að ná og halda stjórn í landinu frá því að hann tók völdin í ársbyrjun 2025, eftir árangursríka sókn fjölda uppreisnarsveita undir hans forystu gegn stjórnarher Assads, þáverandi forseta. Hann hefur styrkt stöðu sína og tökin á valdatökunum síðan, frekar en hitt. En hvernig er lífið í Sýrlandi í dag?Spegillinn grennslaðist fyrir um það og rætt var við Magneu...
10 min
21 July 2026
Mannfall og mannekla í Úkraínustríðinu
Fjórum árum og fimm mánuðum eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu hefur stríðið milli landanna breyst mikið. Drónar hafa að miklu leyti tekið við af hermönnum í fremstu víglínu, en það breytir því þó ekki að mannfall er enn mikið í báðum herjum. Þá hefur mannfall líka stóraukist í röðum almennra borgara, beggja vegna landamæranna. Ein afleiðing þessa er sú að æ erfiðara verður að manna herina og...
10 min
20 July 2026
Valdaskipti í Bretlandi
Húsbóndaskipti urðu í bústað breska forsætisráðherrans að Downingstræti 10 í Lundúnum í dag, þegar Keir Starmer flutti þaðan og Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri í Manchester og nýkjörinn þingmaður Verkamannaflokksins flutti þar inn. Bretar eru á meðal okkar næstu nágranna og helstu bandalags- og viðskiptaríkja, og því ekki úr vegi að forvitnast aðeins um þessi valdaskipti, ef það er rétta...
10 min